60.622 greinar á íslensku.
Saladín
Saladín var kúrdískur hershöfðingi sem stofnaði Ajúbída-ættveldið, sem náði yfir Egyptaland, Sýrland, Palestínu og hluta af norðurhluta Mesópótamíu,
Árið 1187 náði her Saladíns Jerúsalem úr höndum kristinna krossfara eftir sigur í orrustunni við Hattín. Hann barðist lengi við krossfara frá Vestur-Evrópu, einkum í þriðju krossferðinni, þar sem andstæðingur hans var meðal annars Ríkharður ljónshjarta. Þrátt fyrir að Jerúsalem héldist undir stjórn múslima eftir krossferðina, náðist friðarsamkomulag sem tryggði kristnum pílagrímum aðgang að borginni.
Saladín naut mikillar virðingar bæði meðal múslima og kristinna fyrir göfuglyndi sitt og réttsýni, jafnvel í hernaði.
Vissir þú...
- … að Pétur 2. Júgóslavíukonungur er eini konungurinn sem hefur verið grafinn í Bandaríkjunum?
- … að bókin Lolita er talin hafa verið byggð á sambandi Charlie Chaplin og Litu Grey árið 1924?
- … að misjafnt er eftir löndum hvort texti skjáþýðinga sé miðjujafnaður eða vinstrijafnaður?
- … að viðurnefnið „Napóleon á sviði glæpanna“, sem haft var um Moriarty prófessor, óvin Sherlock Holmes, var fengið af raunverulegum glæpaforingja að nafni Adam Worth?
- … að fræðiheiti kolla, regulidae (sjá mynd), merkir „lítill kóngur“ og vísar til litsterkrar krúnu fullorðinna fugla?
Fréttir

- 3. nóvember: Demókrataflokkurinn vinnur meirihluta bæði á fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkjaþings í miðkjörtímabilskosningum í Bandaríkjunum.
- 25. október:
- Luiz Inácio Lula da Silva (sjá mynd) er endurkjörinn forseti Brasilíu.
- Pólitísk mótmælahreyfing stúdenta sigrar ríkisstjórn Aleksandars Vučić í þingkosningum í Serbíu.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Guðjón Þórðarson (13. nóvember) • Mörður Árnason (10. nóvember) • Sæmi Rokk Pálsson (7. nóvember) • Patrick Stewart (28. október)
16. nóvember
- 2007 - Þúsundir létust og milljónir misstu heimili sín í gífurlegum fellibyl sem gekk yfir Bangladess.
- 2007 - Íslenska eignarhaldsfélagið Stím var stofnað.
- 2016 - Nýtt gagnasafn um íslensku, Málið.is, var opnað.
- 2020 - Fellibylurinn Iota gekk á land í Níkaragva, aðeins tveimur vikum eftir fellibylinn Eta.
- 2021 - Rússar voru gagnrýndir harðlega eftir að prófanir á flaugum til að granda gervihnöttum mynduðu ský af geimrusli sem ógnaði Alþjóðlegu geimstöðinni.
- 2022 - Artemis 1: NASA sendi ómannað geimfar á braut um tunglið til að prófa nýtt geimskotakerfi fyrir mönnuð geimför, Space Launch System.
- 2023 - Andry Rajoelina var kjörinn forseti Madagaskar.
- 2023 - Finnland lokaði flestum landamærastöðvum við landamærin að Rússlandi vegna straums flóttafólks.
Systurverkefni
|
|
Source: This content is adapted from Forsíða on Wikipedia
Licensed under Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International (CC BY-SA 4.0)